01. október 2007 klukkan 16:58
Lélegasti bloggari allra tíma situr núna á Kofa Tómasar Frænda og þykist vera ýkt menningarleg. Staðreyndin er því miður sú að hún er bara alls ekki menningarleg og heiðarlega tilraunin hennar til að sitja á kaffihúsi og vera voða duglega að læra er farin fjandans til. Í fyrsta lagi þá er hún að fá þennan svakalega fína höfuðverk ( sem stafar trúlega af þreytu því 2 tíma svefn er bara alls ekki nóg), í öðru lagi þá hefur hún enga einbeitingu til að gefa í lærdóminn, í þriðja lagi þá hefur hún enga nennu í að læra og í fjórða lagi þá er hún svöng og hana langar miklu frekar í panini með brie og beikoni en að lesa um einhvern leiðinda sjúkdóm. En þannig standa nú málin fröken Marsibil Anna er stödd í höfuðborginni í sinni annarri viku í verknámi á deild 14-E (hjartadeild) á landspíta háskólasjúkrahúsi. Fyrstu vikuna tók hún með trompi í byrjun september og fannst mjög gaman. Núna er 1 dagur búin af viku 2 og hún er ýkt ónýt eftir vaktina enda mikið að gera á stórum spítala.
Annars er ekki baun að frétta af mér. Ég er byrjuð í skólanum og það gengur svona lala, fólk skilur hvað ég á við. Námið gengur vel þegar ég fæ lærukast sem er því miður alltof sjaldan þessa dagana. Ég er að vinna í 35% sem er ekki nein vinna og því ákvað ég að fá mér aukaaukavinnu og sótti um á olís, núna sit ég bara við símann og bíð eftir að það verði hringt í mig þaðan. Gunnar bróðir keypti sér bíl um daginn, rosaflottan nissan primera elegance, þannig að núna getur maður komist þangað sem manni langar án þess að treysta á gæsku vina sinna. Ég er búin að eignast frystiskáp, Ólína og Valli gáfu mér hann og það kom sér mjög vel því einhver staðar þarf ég að geyma allt slátrið sem ég og mamma tókum í síðustu viku. Já, ég fór nebla til Eyja síðustu helgi (sem sé ekki helgina sem var að enda í gær heldur hina á undan) og eyddi megninu af laugardeginum í að taka slátur með mömmu og það var frábær dagur. Alltaf gaman að eyða degi með mömmu sinni, hún er nebla besta mamma í heimi og ég á líka besta pabba í heimi bara til að hafa það á hreinu. Foreldrar mínir rúla feitt :D En ég fór líka í afmæli til Sirrýar á laugardagskvöldinu sem var fínt. Fullt af fullu fólki. Ég veit ekki hvað ég get bullað meira er eitthvað svo tóm í hausnum svo er líka paninið mitt komið, ummmm panini og ískaffi nammi nammi namm.
Jú eitt í viðbót Mamma mín á afmæli á morgun til hamingju með afmælið elsku besta mamman mín. Og líka til hamingju með afmælið pabbakrútt (hann átti afmæli 27.sept.
Ég kveð að sinni og gangið hægt um gleðinnar dyr dúllurnar mínar knúsí knús

P.S mig langar í svona hár, bara síðari útgáfu af því
Marsibil Anna Jóhannsdóttir
15. ágúst 2007 klukkan 06:26

En svona standa málin krakkar mínir ég er snarklikkuð og ég vona að þið gerið ykkur öll grein fyrir því að þið hafið ekki gott af því að þekkja mig. HEHE nei bara smá djókur í tilefni þess að ég er illilega andvaka og er orðin nett pirruð á því. En ég nýtti mér það til að setja inn nokkrar myndir inn á síðuna endilega kíkjið í albúmið ;)
En það sem er helst að frétta af mér er það að ég fór á þjóðhátíð og það var bara endalaust mikil snilld. Þetta byrjaði allt saman eldsnemma á fimmtudagsmorgun þegar ég og hún Guðrún Helga brunuðum í bæinn til að klára ýmis erindi fyrir hátíðina sjálfa. Fyrst ákváðum við að kíkja í rúmfó og byrgja okkur upp af bakpokum og ýmsu öðru nytsamlegu í brekkuna, en það var ekki opnað fyrr en kl 11 þannig að við fórum bara á laugarveginn. Þar var ýmislegt keypt og sopið á einu besta kaffi sem ég hef fengið lengi, Kofi Tómasar klikkar aldrei. Svo eftir mikla verslun héldum við aftur í Rúmfó og versluðum helling. Svo ætluðum við að fara í henson að ná í peysurnar okkar en sem betur fer hringdi ég á undan okkur því þær voru ekki nærri tilbúnar. Þannig að við fórum bara að vesenast meira keyptum smá dreitil af áfengi í Heiðrúni og kíktum svo hinum megin við götuna í Euro Pris þar sem okkur áskornuðust þessir fínu hitabrúsar fyrir "kakóið" í brekkusönginn. Eftir það fórum við svo á N1 bensínstöð og gengum frá öllu dótinu okkar þar bara á bílastæðinu fyrir framan. Á meðan við vorum þar fengum við símtal frá Henson svona til þess að þær gætu fullvissað sig um að allt væri satt og rétt í textaskrifum hjá þeim. Þar fengum við líka að vita að peysurnar yrðu tilbúnar eftir klukkutíma eða um 3 leytið. Þennan klukkutíma drápum við í rólegheitunum og brunuðum svo af stað í Henson. Þegar þangað var komið var verið að prenta á síðustu peysurnar svo við þurftum aðeins að bíða, svo kom að rukkununni. En það er saga að segja frá því. Mér hafði verið tjáð amk 2 að verðið færi ekki yfir 5000 kallinn svo það var það sem ég rukkaði hinar stelpurnar um. Svo kom kona ein og heimtaði 6700 kr fyrir stykkið, mín var sko ekki aldeilis ánægð með það og tjáði henni það sem mér hafði verið lofað, hún rauk þá í simann og eftir smá tíma kom hún aftur með nýtt verð 5400 kr stk. Þá fauk í mína og hún rétt fram 50000 kall og sagði þetta er það sem ég er með take it or leave it (í aðeins kurteisaritón samt ) og hún samþykkti það með trega og óskaði okkur góðrar helgar. Þarna lærði ég að nota prútthæfileikana frá henni móður minni og fá þennan fína afslátt. Eftir þetta héldum við sem leið lá á Stokkseyri þar sem ég fékk fastar fléttur hjá henni Ólöfu mömmu Guðrúnar og við chilluðum í góðu yfirlæti allt þar til hann Ingólfur maður Ólafar skutlaði okkur í hann Herjólf. Svo var haldið heim á leið í fínu veðri og góðu spjalli úti á dekki. Þegar við svo loksins komum heim á Eyjuna fögru beið okkar löng bið eftir farangrinum okkar svo var haldið heim á Staðarfell og byrjað að hella í sig. Eftir það var farið í bekkjabíl á smá rúnt sem endaði svo á húkkaraballinu. Þar skemmtum við Guðrún og Rósa okkur hið besta en fórum þó allar heim konur einsamlar.
Á föstudeginum var svo slappað af, kíktum til Sirrý hár til að fá fagurfjólubláa lokka í hárið og greiðslu fyrir hátíðina (mín hélt allan dagana, fram á mánudagsmorgun þegar ég tók hana úr sjálf). Svo var farið heim og borðað og um kvöldið hittumst við allar bleiku skvísurnar heima hja Sirrý hár og djúsuðum saman þangað til við héldum í dalinn rétt fyrir 9 btw þá hef ég ekki farið í dalinn það snemma síðan ég man ekki hvænær. Í dalnum var svo djúsað og djammað, glápt á brennu og dansað af sér skóna með nokkrum viðkomum í hvít tjöld.
Laugardagurinn var álíka frábær nema hann var ekki tekinn jafn snemma og föstudagurinn, við fórum frá Sirrý nokkru seinna en þá. Svo komum við okkur vel fyrir í brekkunni og horfðum á flugeldasýninguna ásamt frænku hennar Sirrý Árdísar og manninum hennar sem komu frá Bandaríkjunum í heimsókn. Þau eru æðislega frábær og við skemmtum okkur mjög vel með þeim alla helgina.
Sunnudagurinn var þreyttur í klikkaðri sól og blíðu sem var aðeins meiri en á laugardeginum. En samt var stuð heima hjá henni Sirrý Ingu hár og við vorum komnar tímanlega í dalinn til að hlusta á kónginn hann Bubba sem var snilld og ég verð að viðurkenna aðeins betri en hann Árni blessaður. Þó svo að brekkusöngurinn standi alltaf fyrir sínu og maður er aldrei jafn stoltur af því að vera Vestmanneyjingur og þegar maður sér alla í brekkunni standa upp og syngja þjóðsönginn. Eftir þessa fínu skemmtun var drukkið, djammað og dansað framundir morugun.
Ég ætla núna að þakka öllum sem ég hitti á þjóðó fyrir frábæra helgi og sérstaklega SKVÍSUNUM MÍNUM, Þóru, Robba, Svövu og Halla fyrir góða umgengni á húsinu mínu hehe og Ragnari Orra megakrútti fyrir bekkjabílaferðina hehe.
En eins og áður hefur komið fram þá var þetta æðislega þjóðó ein sú besta sem ég hef farið á og það er bara vinkonum mínum (og Robba og líka smá Gunna og Halla) að þakka fyrir það. Ég elska ykkur allar þið eruð yndislegar og ég er endalaust heppin að eiga svona frábærar vinkonur (og vini)
En áfram með mitt daglega líf. Ég er bara búin að vera að vinna á milljón á næturvöktum síðan ég kom heim fyrir utan laugardaginn. En þá skellti ég mér í Gay Pride gönguna með henni Guðrúni og var það hin besta skemmtun. Við gengum til stuðnings niður Laugarveginn undir dynjandi diskótónlist ala Paul Oscar og enduðum niður á Arnarhól þar sem tóku við hin ýmsu skemmtiatriði sem var hvert öðru betra. En það sem stóð upp úr í göngunni sjálfri amk voru hann Maggi (norski) og Skjöldur kærastinn hans. Þið skiljið afhverju þegar þið skoðið myndina hér fyrir neðan. En eftir þetta ætluðum við Guðrún á Nasa en sökum slæmrar heilsu þá var hætt við það en ákveðið að fara á næsta ári í staðinn.
Þetta er það sem á daga mína hefur drifið undanfarið og núna er ég að spá í að gera eina tilraun enn í að sofna og það tekst ekki gríp ég bara í Harry og sé til hvað hann gerir fyrir mig. Annars er svo sem allt í lagi að vera búin að snúa sólarhringnum við miðað við fjölda næturvakta sem ég er búin að taka og á eftir að taka en það eru minnir mig 6 bara næstu daga. En við heyrumst og sjáumst seinna krókódílar knúsí knús
Marsibil Anna Jóhannsdóttir
23. júlí 2007 klukkan 12:57
Oki ég er aftur orðin nonblogger dauðans. Það er bara allt búið að vera að gerast. Í fyrsta lagi þá náði ég öllum prófunum, meira að segja náttúrufræðinni. Í öðru lagi þá er ég búin að vinna í nýju vinnunni minni í næstum því mánuð og ég elska það. Vinnan mín er bara frábær. En fyrir þá sem ekki vita þá hætti ég á elliheimilinu og fór að vinna á sambýli fyrir fatlaða. Krakkarnir sem búa þarna eru ekkert nema yndisleg og skvísurnar sem ég er að vinna með eru mjög fínar og frábærar. Í þriðja lagi þá fór ég til Eyja 10.júní og var þar í næstum því 3 vikur (á launum btw hehe) því ég var að nýta sumarfríið mitt. Tíminn í Eyjum var náttla bara æðislegur, hékk með stelpunum og knúsaði mömmu og pabba. Svo var náttla haldið árgangsmót helgina 22-24 júní og heppnaðist það með eindæmum vel þrátt fyrir nokkra hnökra síðustu dagana fyrir mót. En ég skemmti mér mjög vel og það var æðislegt að hitta alla þessa krakka sem maður hefur ekki hitt í fjölda ára. Takk fyrir mig allir saman. Í fjórða lagi þá er ég orðin ári eldri en þegar ég bloggaði síðast. Já krakkar mínir ég varð víst 24 ára þann 7.júlí síðast liðinn og ég get svarið fyrir það að gráu hárin eru byrjuð að kíkja fram. En ég fór sem sé til Eyja 07.07.07 til að halda upp á daginn og fara á goslokahátíðina. Spáið í því Eyjamenn fjölmenntu niður í bæ til að fagna því að ég varð ári eldri hehe. DJÓK. En þetta var snilldar skemmtun, mín var pínku drukkin en það var bara í fínu lagi.
Þessa dagana er ég bara að vinna á fullu og svo er það bara þjóðhátíðin. Ég nýtti að vísu fríhelgina mína núna um helgina bara frekar vel. Á föstudaginn fórum við Guðrún vinkona á tónleika í bænum sem voru bara snilld. Þetta voru sem sé útgáfutónleikar hjá bandi sem nefnist Perfect Disorder en þeir voru einmitt að senda frá sér sína fyrstu breiðskífu sem er geðveikt frábær hehe. Ef þið viljið heyra í þessu bandi getið þið farið inn á myspace.com/perfectdisorder1. Svo fórum við systkinin ásamt Guðrúni og Vigni í afmælis-og trúlofunarpartý til Gerðar og Benna Tattoo. Partýið var geggjað, hef sjaldan skemmt mér svona vel í partýi, skellti mér í heita pottinn í öllum fötunum og svona. Endalaust stuð. Sunnudagurinn var svo bara rólegheitardagur, fór að vísu með Guðrúni og Vigni að skoða Gullfoss og Geysi, þau misstu sig nefnilega úr hneykslun þegar þau heyrðu að ég hefði aldrei farið þangað og drifu mig með sér í bíltúr til að skoða þessi náttúruundur. Núna er ég svo bara að glápa á granna og bíða eftir að klukkan verði 2 því þá á ég víst að mæta í vinnu. En það eru bara 11 dagar í þjóðhátíð og ekki nema 10 dagar þangað til við Guddaskvís leggjum í hann til Eyjarinnar fögru á þjóðhátíð. Þetta verður bara snilld, við verðum í klikkað flottum peysum allar skvísurnar vúhú. Svo verður bara djammað eins og enginn sé morgundagurinn. En ég hef eiginlega ekki meira að segja, ákvað bara að sýna smá lit og blogga fyrir þessa bloggsjúku sem ég þekki. Úh eitt enn ég er komin með nýju Harry Potter bókina í hendurnar, Gunni bróðir gaf mér hana í afmælisgjöf bara heppin gella ég. Er að vísu ekki byrjuð að lesa hana en það gerist bráðum hehe.
En ég er að fá krampa í hendurnar af öllu þessu pikki. Heyrumst og sjáumst seinna krókódílar Knúsí knús
Marsibil Anna Jóhannsdóttir
09. maí 2007 klukkan 14:04
Vííí mín er loksins komin í sumarfrí í skólanum. Var í báðum síðustu prófunum mínum í gær. Tók sko bara 2 próf á þessari önn og þau voru sem sé bæði í gær, spænska 203 og sjúkdómafræði 103. Mér gekk bara vel og er bjartsýn á að ná báðum þó svo að lærdómurinn hafi verið upp og ofan hehe. Ég skellti mér nebla í sumarbústaðarferð um helgina og það var klikkað fjör. Gunni bróðir og vinir hans voru búnir að plana þessa ferð í soldin tíma og langt síðan bústaðurinn var pantaður. Ferðin byrjaði eiginlega á fimmtudaginn hjá mér og Gunna við fórum í bæinn með Ástu og Nadda og Elísu sem voru hjá okkur eina nótt bara kíkja í heimsókn voða næs. Kíktum í sveitina til Ólínu og á Hvolsvöll til Dísu og Gunna. Fengum okkur pizzu á hróa og Ásta fór í klippingu og varð ekkert smá mikil gella eftir það. En alla vega fengum við Gunni far með þeim aftur í bæinn á fimmtudaginn því planað var að hitta nokkra Eyjakrakka úr leikhúsinu fá okkur kaffi og kíkja á leikritið hans Agga sem leikstýrði Gauragangi hjá LV. Við fórum til Ófa og Óðins og þaðan fórum við Ófi, Kidda og Gunni niður í bæ þar sem við hittum Kristíni Gríms, Gumma Lú, Zindra Frey og Gunnar Þór. Fengum okkur kaffi svo fórum við í Austurbæ ég,Zindri, Gummi, Gunni og Kristín og sáum leikritið Afganga sem var tær snilld. Eftir það kom Kidda svo að sækja mig og Gunna og við fórum til Ófa gláptum smá á video og fórum svo að sofa. Rétt eftir hádegi á föstudaginn var svo haldið Austur ásamt Hjalta. Við hittum svo Tanna og Steinu á Selfossi, fengum okkur KFC og fórum í ríkið þar sem ég tók skyndiákvörðun um að fara bara með í bústaðin eftir smá hópþrýsting frá Steinu og Kiddu. Eftir að það var komið á hreint fórum við í Bónus og versluðum í matinn, ég fór heim og pakkaði niður svo skiptum við í bíla eftir kynjum, Kidda og ég fórum með Steinu í bíl og Tanni, Ófi og Gunni með Hjalta í bíl. Við stelpurnar vorum aðeins á eftir strákunum því ég þurfti að koma við heima og svo þurftum við aðeins að koma við í Kjarval á Hvolsvelli. Þegar við komum svo í bústaðin sem staðsettur er í Fljótshlíðinni fögru mætti okkur alls ekki fögur sjón. Bústaðurinn var hreinlega ógeðslegur, það var engin sturta, ekkert rennandi vatn, eldavélin var ekki tengd, það voru engin rúm og svo framvegis. Þannig að síminn var tekinn upp og hringt í FIT til að kvarta og sjá hvort ekki væri hægt að redda öðrum bústað. Eftir það símtal komumst við að því að bústaðnum hafði verið lokað nokkrum dögum eftir að við höfðum verið búin að borga og það hafði bara gleymst að segja okkur það. En okkur var reddað öðrum bústað frítt og við eigum inni helgi í bústað hjá þeim. Nýji bústaðurinn er staðsettur í Húsafelli þannig að við drifum okkur á stað enda klukkan að ganga 6 og samkvæmt manninum hjá FIT áttum við u.þ.b. 3ja tíma keyrslu framundan. Strákunum fannst klikkað sniðugt að við færum Þingvallaleiðina og yfir Uxahrygg til að sleppa við göngin því fyrir þá sem ekki vita er Húsafell rétt hjá Borgarnesi. Við stelpurnar urðum ekki mjög hamingjusamar þegar við áttuðum okkur á því hvers kyns ógöngur við höfðum verið sendar í því leiðin yfir uxahrygg er malarvegur með helling af holum og við vorum örugglega að keyra þá leið í 2-3 tíma en þetta var bara gaman eftir á. Svo komum við í bústaðinn rétt um 22 leytið og áttum von á að þurfa að bíða eftir strákunum í smá tíma því þeir lögðu af stað á eftir okkur en nei þeir birtust áður en við náðum að opna kofann. Svo ákváðum við bara að grilla Hambó, kíkja í pottinn og aðeins að fá okkur í glas, tókum því bara rólega og allir voru komnir upp í rétt um 2. Á laugardaginn fórum við svo í Borgarnes í bongóblíðu, þar sem við fórum í sund og höfðum það kósý. Á laugardagkvöldið grilluðum við svo læri og allt með því bara gott, takk fyrir mig Ófi og svo var bara hrunið í það með látum og brjáluðu fjöri. Á sunnudaginn var hafist handa við að ganga frá og svo lá ferðin bara heim á leið með gleði í hjarta. Takk fyrir mig krakkar þetta var æði og ég sé sko ekki eftir því að hafa komið með.
Á mánudaginn kom svo pabbi óvænt og verður hjá okkur amk fram að helgi því hann var lánaður frá Eyjablikk til að vinna hjá ÞH-blikk með Gunna bróðir. Það er voða kósý að fá hann í heimsókn, hann eldaði meira að segja handa okkur rónasteik á mánudaginn, bara gott. Núna er ég bara í letikasti því ég verð að vinna svo lítið fram að sumarfríi held að ég eigi bara einhverjar fimmtán vaktir eftir á ljósheimum og svo fer ég til Eyja annað hvort 10 eða 11 júní og verð fram til 28.júní eitthvað svoleiðis.
En ég ætla að fara að gera eitthvað að viti setja í eins og eina þvottavél og drífa mig að fara að kjósa því ég þarf að kjósa utankjörstaðar. Sjáumst seinna krókódílar knúsí knús
Marsibil Anna Jóhannsdóttir
28. apríl 2007 klukkan 19:27
Já krakkar mínir svona er lífið ég hef verið mest uppteknasta manneskja í heimi undanfarið. Allir kennarar að missa sig í verkefnavinnu svona rétt fyrir próf, svo vinna og stuð bara. Annars er bara fínt að frétta. Byrja í nýrri vinnu 1. júlí á sambýli hérna á Selfossi og vitir menn minns er bara í fríi yfir ÞJÓÐÓ bara gaman. Svo eru bara próf framundan, fer í eitt á miðvikudaginn svo 2 síðstu 8.maí svo er ég bara í rólegheitunum því ég er bara í 50% vinnu þangað til ég hætti á Ljósó. Fer svo til Eyja í kringum 11 júní og verð í næstum 3 vikur yndi bindi árgangsmót og fjör. Annars ég er bara að bíða spennt eftir eurovision, er búin að heyra öll lögin og þau eru misgóð eins og alltf. Fíla Danska lagið í botn og ekki skemmir fyrir að það er dragdrottning sem syngur það. Svo er DJ Bobo líka algert met og vampírulagið hans hehe. En það er bara stemmning fyrir þessu hjá mér amk. En ég er eiginlega alveg heilalaus er búin að vera að þrífa síðan ég vaknaði um 2leytið og nú er íbúðin mín spotless og líka sameignin. Ég nenni ekki að bulla meira heyrumst seinna og góða helgi :)
Marsibil Anna Jóhannsdóttir
06. apríl 2007 klukkan 15:16
Jæja þá er maður komin á eyjuna fögru. Bara næs. Ég kom sem sé í gær með fyrri ferð Gubbólfs og kom mér bara vel fyrir hjá mömmu og pabba. Svo fórum við að versla restina af páskamatnum og svoleiðis fjör.
Eins og Vestmannaeyjingum er einum lagið þá voru allir að versla eins og búðirnar myndu aldrei opna aftur og þeir ættu eftir að svelta. Mér finnst þetta bara svo fyndið því, búðirnar eru lokaðar í einn dag sitthvoru megin við páskadag hehe. En svona er þetta bara. Eftir búðarferðina kíktu Ása og Ragnar í heimsókn og við Ása misstum okkur í gleðinni, það er alltaf svo mikið æði að geta hlegið af vitleysunni í okkur. Takk Ása mín hehe. Svo í gærkvöldi fórum við mamma, pabbi, Ásta systir og Natan á frumsýningu hjá LV á leikritinu Himnaríki og var það hin besta skemmtun. Hrós handa leikfélaginu og þeim sem tengjast því. Annað hrós handa þeim því þau ætla að halda styrktarsýningu fyrir hana Valgerði sem slasaðist alvarlega í bílslysi fyrir nokkru. Allur ágóðinn rennur beint til Valgerðar svo það er bara æði Kúdós LV. Eftir sýninguna fór ég svo bara til Ásu að chilla, kíktum að vísu líka aðeins á hana Sirrý í eina sígo og til að sjá íbúðina hennar. Rosafínt hjá henni bara. Svo rúntuðum við Ása aðeins áður en Sirrý hringdi og tilkynnti að hún og Rósa babe væru að kíkja í heimsókn. Þannig að ég var ekki komin heim fyrr en rétt eftir 2 í nótt. Svo var ég vakin mjög svo blíðlega í morgun með kossi á kinnina frá Elísu skvís, bara notalegt. Svo var ég voða dugleg og gerði þetta snilldar rækjusalat sem kláraðist á nóinu. Svona er ég góður kokkur hehe. Núna er bara hang og dagurinn er endalaust lengi að líða, Föstudagurinn langi ber svo sannarlega nafn með réttu. Hann er alltaf lengi að líða sama hvað maður gerir. hehe. Svo er bara hamborgarahryggur og fínheit í kvöld og trúlega djamm annars kemur það í ljós því hún Ása mín er að fara að vinna í fyrró. En ég nenni ekki að bulla meira ætla að halda áfram að fá tímann til að reyna að líða hraðar.
Tútelú krúsírús.
Marsibil Anna Jóhannsdóttir
01. apríl 2007 klukkan 21:46
Hæhæ alle sammen. Hvað segiði þið svo gott hehe. Ég segi bara fínt er komin í páskafrí í skólanum og á eftir að vinna 2 vaktir áður en ég fer til Eyja í heila viku yfir páskana. Fer til Eyja með fyrri ferðinni á Skírdag og fer svo aftur á Selfoss með fyrri ferðinni föstudaginn eftir páska. Þannig að þið fáið að hafa mig í heila viku og eins gott að þið Eyjafólk séuð jafn spennt að fá mig eins og ég er að koma hehe. Á meðan ég man velkomin á nýju síðuna mína, ég gafst upp á blog.central þvi ég gat ekkert bloggað þar, færslurnar mínar týndust og ég var kannski búin að skirfa fullt og svo hvarf það bara allt í einu og eitthvað bull þannig að ég hermdi bara eftir Helgu og Ásu og kom hingað. Vonandi líkar ykkur vel
Annars er bara mest lítið að frétta geri ekki mikið annað en að fara í skólann og vinna. Fór að vísu til Reykjavíkur síðustu helgi því Gunnar bróðir var að keppa í músíktilraunum ásamt bandinu sem hann er í sem ber það skemmtilega nafn “ Man ekki hvað þeir heita”. Ég fór sem sé með rútunni á klukkan 4 á föstudaginn í síðustu viku og var samferða Eydísi og Lilju sem eru stelpur sem ég þekki hérna í Hnakkistan. Við rúlluðum inn í borgina um hálf 6 leytið og Gunni krúttið sem hann er var búinn að fá bílaleigubíl sem beið eftir okkur á BSÍ. Þannig að við kæmust auðveldlega ferða okkar í borg óttans. Ferðinni var heitið upp í Breiðholt því ég þurfti að sækja Nonna og skutla Eydísi til bróður síns með einhvern poka. Svo þurfti ég að skutla stelpunum í Loftkastalann því ég þurfti að ná í barnapíurnar hans Nonna upp í Grafarvog. Þegar við vorum búin að losa okkur við skvísurnar var Heiða orðin svöng þannig að við fórum með hana á McDonalds áður en við fórum upp í Grafarvog og það tók sinn tíma þannig að við þurftum að drífa okkur soldið svo við myndum ekki missa af Gunna því þau voru fyrst á svið klukkan 7 stundvíslega. Þegar við vorum komin aftur upp í Breiðholt með Heiðu og Barnapíurnar var klukkan orðin ískyggilega nálægt því að vera 7 þannig að við leyfðum Yarisnum að sýna hvað í honum bjó og keyrðum á seinna hundraðinu niður í bæ og vorum komin í Loftkastalann 5-10 mín yfir 7 og ekki beið okkar betri stuð þegar við ætluðum að ná í miðana okkar í afgreiðslunni því það var búið að nota ókeypismiðana sem Gunni fékk og það átti ekkert að hleypa okkur inn þannig að þetta var soldið vesen en þegar við vorum búin að vera að reyna að ná sambandi við miðasölugellurnar og gæslugaurnana í sirka 10 mín þá fattaðist að Gunnar hefði keypt 3 aukamiða og við áttum náttla að geta notað þá. En þannig fór með sjóferð þá, eftir allt þetta bras og álag við að ná öllu í tíma misstum við af frumraun “man ekki hvað þeir heita” á sviði. Okkur og Gunnari bróðir til mikillar gremju, en svona er víst lífið. Svo á laugardeginum þá ákváðum við að hittast öll systkinin ásamt dætrum og gera eitthvað skemmtó og það tókst með ágætum. Takk fyrir fína helgi krakkar mínir þið eruð ágæt ;) Annars er ég bara í letinni miklu þessa dagana og bíð spennt eftir að komast til Eyja og knúsa foreldraeininguna og skemmta mér með vinkonunum. Eins gott að það verði gert eitthvað skemmtilegt með mér skvísur hehe. En ég hef svo sem ekki meira að segja ákvað bara að blogga smá svo Helga felga og co færi ekki í fílu hehe. Nei djók þið eruð ágætar ;* Knúsí knús.
Marsibil Anna Jóhannsdóttir